DataMarket: Skref fyrir skref
Fyrstu kynni
Þig langar að skoða hvernig kílóverð á kartöflum hefur þróast.- Farðu á forsíðu DataMarket
- Sláðu leitarorðið kartöflur inn í leitarreitinn og smelltu á Leita-hnappinn. Leitin skilar allmörgum niðurstöðum.
- Í listanum sérðu gagnasettið Útsöluverð nokkurra vörutegunda og þjónustuliða 1980-2009. Smelltu á það.
- Gagnasettið opnast í gagnaskoðaranum. Þar stillir þú upp þeim gögnum sem þú vilt skoða. Í þessu gagnasetti er bara ein breyta: Vörutegund
- Í listanum yfir vörutegundir finnur þú Kartöflur kg. Hakaðu við þann lið.
- Smelltu á takkann Teikna rit
Nú blasir við þér, aðeins neðar á síðunni, verðlagsþróun á kílói af kartöflum frá 1980. Með því að renna músinni yfir myndina getur þú lesið gildin fyrir einstök ár. Þú getur borið þetta saman við verðlag á öðrum vörutegundum með því að merkja við þær í listanum og smella aftur á Teikna rit.
Fliparnir Myndrit og Tafla flakka á milli mismunandi birtingarmynda á þessum gögnum. Gögnin má svo sækja til frekari vinnslu í Excel eða öðrum töflureiknum með því að smella á hnappinn Birta í Excel, neðst í hægra horninu.
Gagnasett tengd saman
Nú langar okkur að skoða fólksfjöldaþróun á Íslandi frá örófi alda.- Farðu á forsíðu DataMarket
- Smelltu á Finna gögn í valmyndinni efst á skjánum. Þá opnast yfirlit yfir flokkakerfi síðunnar.
- Undir yfirflokknum Íbúar finnur þú flokkinn Mannfjöldi. Smelltu á hann.
- Í þessum flokki er allmikið efni. Flettu áfram þar til þú finnur gagnasettið Lykiltölur mannfjöldans 1703-2009. Opnaðu það.
- Þetta gagnasett hefur líka bara eina breytu: Eining. Veldu Árleg fjölgun og smelltu á Teikna rit. Áhugavert, ekki satt? En hver er spáin um framhaldið?
- Smelltu nú á hnappinn Bæta við gagnasetti. Þetta opnar lítinn leitarreit. Sláðu þar inn mannfjöldi spá og smelltu á Leita að gögnum. Finndu gagnasettið Spá um mannfjölda eftir helstu þáttum 2008-2050 og smelltu á bæta við lista.
- Merktu við Fólksfjölgun og smelltu á Teikna rit.
Nú ertu kominn með sögulega þróun fólksfjölgunar (og -fækkunar) á Íslandi og spá frá 1703-2050. Tímabil sem spannar nærri 350 ár. Svona má tengja saman hvaða tvö gagnasett sem er og jafnvel fleiri ef því er að skipta.
Töluleg þróun tengd við atburði
Nú langar okkur að skoða tækifæri í hótelgeiranum.- Farðu á forsíðu DataMarket
- Sláðu inn hótel í leitarreitinn.
- Opnaðu gagnasettið Gistinætur, gestakomur og meðaldvalarlengd á hótelum og gistiheimilum 1998-2008.
- Þetta gagnasett hefur þrjár breytur: Ríkisfang, Eining og Landsvæði. Merktu við Alls, Gistinætur og Landið allt. Smelltu svo á Teikna rit og skoðaðu myndina.
- Taktu nú merkið úr Alls og veldu í staðinn ríkisföngin Bretland og Ítalía og teiknaðu ritið aftur.
Nú sérðu muninn á því hvernig Ítalir og Bretar heimsækja Ísland. Það þýðir greinilega lítið að reyna að bjóða Ítölum gistingu á veturna! Eins má sjá að Bretar koma allmikið á vorin, líklega eru það páskarnir. En hvað um toppinn sem virðist nokkuð greinilegur eftir sumarvertíðina frá 2002 eða svo? Með því að renna músinni yfir myndina sést að þetta er alltaf í október. Hvað gerist í október sem trekkir gesti frá Bretlandi?
Höldum áfram að skoða málið...
- Smelltu á textann Atburðir ofan við takkann Bæta við gögnum. Þetta opnar leitarreit sem í dag leitar í fréttum mbl.is
- Sláðu inn textann airwaves í leitarreitinn og smelltu á Leita að atburði. Við blasa fréttir af mbl.is þar sem Iceland Airwaves kemur við sögu.
- Finndu nokkrar fréttir sem líklegt er að eigi sér stað á þeim tíma sem Iceland Airwaves hátíðin er haldin og ýttu á bæta við lista. Fréttir með fyrirsagnir á borð við Uppselt á Iceland Airwaves eru líklegar til árangurs. Bættu nokkrum við.
Farðu neðst á síðuna (þú getur líka lokað leitarniðurstöðunum úr atburðaleitinni til að losna við þær af skjánum) og skoðaðu myndina. Þú sérð núna eins konar fána inni á lárétta ásnum. Þetta táknar dagsetningar fréttanna sem þú valdir. Falla þær saman við auknar gestakomur Breta? Fréttirnar má svo opna með því að smella á fánana. Þú getur líka slegið inn þína eigin atburði með því að smella á takkann Búa til atburð undir Atburðir. Þá slærðu einfaldlega inn dagsetningu og titil og smellir svo á OK. Snið dagsetninga er áááá-mm-dd, t.d. 2005-06-17 til að tákna 17. júní 2005.
Yfir til þín
Nú ert þú fær í flestan sjó í að finna þau gögn sem þú hefur áhuga á í DataMarket, bera saman þróun ólíkra hluta og tengja fréttum og öðrum viðburðum.
Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar.
